Fréttapistill | 13. mars 2024

Uppskeruhátíð íslensks tónlistarfólks

Mikið þótti mér vænt um að Hörður Áskelsson skyldi hljóta heiðursverðlaun á uppskeruhátíð íslensks tónlistarfólks í Hörpu í gærkvöldi. Framlag hans til menningar og lista er svo sannarlega mikilsvert og þar að auki er hann þægilegur í öllu viðmóti. Það getur Eliza vitnað um, sem söng í Mótettukór Hallgrímskirkju undir stjórn Harðar þegar hún var nýflutt til Íslands, staðráðin í að koma sér inn í samfélagið hér og læra málið.

Eins vænt fannst mér um að mega afhenda Kára Egilssyni þá viðurkenningu að teljast bjartasta vonin í tónlistarlífi landsins nú um stundir. Kára er margt til lista lagt, leikur popp og djass jöfnum höndum, menntaður í klassískri tónlist og er þegar búinn að sýna hvað í honum býr.

Loks var auðvitað gaman að hitta tvo Álftesinga í öllum herlegheitunum, Fannar sem söng svo blítt með Hipsumhaps uppi á sviði, og Óskar Loga sem framdi svakalegan gítargjörning uppi á palli úti í sal til heiðurs Björgvini Gíslasyni sem lést nú nýverið. Það var falleg stund.

Ég óska Kára Egilssyni, Herði Áskelssyni, öðrum verðlaunahöfum og öllum sem voru tilnefnd til slíks heiðurs hjartanlega til hamingju. Einnig óska ég öllum velfarnaðar sem kynna íslenska tónlist hér heima og erlendis á hinum ýmsum sviðum. Við eigum frábært listafólk, við Íslendingar!

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta 25. apríl 2024.

  • Með heiðursverðlaunahafa Íslensku tónlistarverðlaunanna, Herði Áskelssyni og eiginkonu hans Ingu Rós Ingólfsdóttur.
  • Kári Egilsson útnefndur Bjartasta vonin á Íslensku tónlistarverðlaununum 2024.
  • Álftesingar á Íslensku tónlistarverðlaununum, Fannar úr Hipsumhaps gítarleikarinn Óskar Logi.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar