Fréttapistill | 06. des. 2023

Tim Ward

Mér hlotnaðist sú ánægja í dag að sæma Tim Ward riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu íslenskra hagsmuna á alþjóðavettvangi. Hann fór fyrir vaskri lögmannasveit sem varði málstað Íslands í Icesave-deilunni fyrir EFTA-dómstólnum. Fyrr á þessu ári var réttur áratugur liðinn frá því að dómur féll í því máli, Íslandi í vil. Fróðlegt var að ræða við Ward og aðra gesti á Bessastöðum um málið og margt sem því tengist. Tim Ward er sannkallaður Íslandsvinur.

  • Tim Ward, málflutningsmaður Íslands í Icesave-málinu, sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu íslenskra hagsmuna á alþjóðavettvangi.

  • Í fylgd með Ward komu á Bessastaði þau Kristján Andri Stefánsson sendiherra og lögmennirnir Jóhannes Karl Sveinsson og Þóra M. Hjaltested, sem áttu sæti í málflutningsteymi Íslands í Icesave-málinu, auk Catherine Davidson, eiginkonu hans og Þorsteins Siglaugssonar, vinar Wards frá fornu fari.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar