Fréttapistill | 31. jan. 2024

Menningararfur UNESCO

Sundlaugamenning okkar Íslendinga er einstök, sterk stoð í samfélaginu sem bætir lífsgæði okkar. Lagt er til að hún verði sett á lista Menningarmálastofnunar Sameinuðu Þjóðanna, UNESCO, yfir óáþreifanlegan menningararf um víða veröld. Umsókn um það eflist ef fjöldi fólks semur stutta lýsingu á því hvaða máli sundlaugarnar skipta fyrir það í dagsins önn. Sjálfur er ég búinn að senda stuðningsyfirlýsingu og segi þar frá því hvernig sund og pottur bæta líkama og sál, hvernig við hittumst í laugunum, hreyfum okkur og spjöllum saman. Nánari upplýsingar má sjá á vefsíðunni lifandihefðir.is. Koma svo, tökum þetta góðum sundtökum!

Myndirnar eru frá Klébergslaug á Kjalarnesi þar sem ég átti gott pottaspjall á dögunum eftir sundsprett.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta.

  • Í Klébergslaug á Kjalarnesi.
  • Í Klébergslaug á Kjalarnesi.
  • Í Klébergslaug á Kjalarnesi.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar