Fréttapistill | 05. des. 2022

Jafnréttisþing í Japan

Ísland hefur getið sér góðan orðstír erlendis fyrir árangur í jafnréttismálum. Í 13 ár höfum við vermt efsta sæti jafnréttislista Alþjóðaefnahagsráðsins og með hverju árinu sem líður vekur það meiri athygli - jafnvel alla leið til Japan. Þar hef ég verið að störfum undanfarna daga.

Japanir sitja í 116. sæti jafnréttislistans en ráðamenn segjast hafa áttað sig á mikilvægi kynjajafnréttis í samfélaginu. Þeir líta til Íslands sem fyrirmyndar í þessum efnum og því var mér boðið að flytja opnunarerindi á ráðstefnunni World Assembly for Women í Tókýó um helgina og taka þar þátt í umræðum um leiðir til að stuðla að auknu jafnrétti. Reynsla okkar Íslendinga sýnir að hugarfar og samfélagsgerð getur gjörbreyst á skömmum tíma sé gripið til markvissra aðgerða.

Að loknu jafnréttisþinginu heimsótti ég borgina Tama í úthverfi Tókýó. Íbúar þar tóku á móti íslensku hópunum á Ólympíuleikunum og Ólympíumóti fatlaðra í Japan 2021. Það var ánægjulegt að færa borgarbúum þakkir fyrir alúð þeirra við afreksfólkið okkar. Nú stendur líka yfir Íslandsvika í þessari japönsku borg, í annað sinn.

Á sunnudaginn fór ég svo dagsferð í héraðið Fukishima. Þau okkar, sem sáu fréttamyndir af flóðbylgjunni miklu sem gekk yfir Fukushima árið 2011, gleyma þeim eflaust aldrei. Hamfarirnar ollu kjarnorkuslysi og enn er glímt víð afleiðingar þess. Í Fukishima sá ég draugabyggðir þar sem fólk hefur ekki átt afturkvæmt, en fór einnig í bæ þar sem fyrstu íbúarnir sneru aftur í ágúst á þessu ári. Í Fukushima fer fram gríðarmikið uppbyggingarstarf og eru stjórnvöld staðráðin í að héraðið skuli verða framtíðarvettvangur nýsköpunar í orkumálum, þar á meðal vetnisframleiðslu og þróun rafmagnsflygilda.

Japanir búa yfir sköpunarkrafti og seiglu. Þar getum við Íslendingar lært af þeim, rétt eins og þau geta lært af okkur í jafnréttismálum. Einmitt þannig sannar alþjóðasamstarf gildi sitt.

Birtist fyrst á facebook-síðu forseta.

  • Hátíðarkvöldverður í Akasaka-höll í boði forsætisráðherra Japans.
  • Fundur með forsætisráðherra Japans, Fumio Kishida.
  • Opnunarræða á jafnréttisþinginu World Assembly for Women 2022 í Tókýó.
  • Fundur með Aya Komaki, forstjóra japanska fyrirtækisins Sanrio Entertainment, sem á vinsæl japönsk vörumerki á borð við Hello Kitty. Komaki hefur vakið mikla athygli í Japan fyrir framsækna og fjölskylduvæna jafnréttisstefnu.
  • Ásamt ungum frumkvöðlum í Fukushima.
  • Stund milli stríða í japönsku tehúsi ásamt Stefáni Hauki Jóhannessyni, sendiherra Íslands í Tókýó.
  • Forseti á opnunarviðburði jafnréttisþingsins World Assembly for Women 2022 í Tókýó.
Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar