• Ljósmynd: Óskar Eiríkur Sveinsson
Fréttir | 02. feb. 2024

Opið hús á Safnanótt

Í tilefni Safnanætur á Vetrarhátíð verður forsetasetrið að Bessastöðum opið almenningi föstudaginn 2. febrúar. Forseti tekur á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 18:00 og 22:00.

Bessastaðir eiga sér merka sögu. Auk Bessastaðastofu, sem byggð var á 18. öld, munu gestir geta skoðað móttökusal og bókhlöðu forsetasetursins sem eru síðari tíma viðbyggingar. Í húsinu má meðal annars sjá úrval myndlistar eftir íslenska listamenn og sýnishorn gjafa sem borist hafa forsetum lýðveldisins. Þá verða til sýnis dæmi um mannvistarleifar sem fundist hafa við fornleifarannsóknir og veita innsýn í búsetu á Bessastöðum allt frá landnámstíð. Lokað verður ofan í fornleifakjallarann.

Á gafl Bessastaðakirkju verður varpað myndefni frá Kvikmyndasafni Íslands af íslensku mannlífi í forsetatíð nokkurra fyrrverandi forseta. Bessastaðakirkja verður einnig opin gestum og mun fyrsti forsetabíllinn, Packard bifreið Sveins Björnssonar, standa í hlaði en bifreiðin er árgerð 1942.

Starfsmenn embættis forseta og aðstoðarmenn veita upplýsingar um staðinn og verða gestum til aðstoðar.

Myndasafn frá opnu húsi á Safnanótt 2023.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar