• Forseti ásamt stjórn Ísbrúar - félags kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál. Ljósmynd: Embætti forseta Íslands.
  • Forseti afhendir Þorbjörgu Halldórsdóttur, formanni Ísbrúar, þakkir til þeirra sem kenna íslensku sem annað tungumál. Ljósmynd: Embætti forseta Íslands.
  • Þorbjörg Halldórsdóttir afhendir forseta bókina Orð eru ævintýri. Ljósmynd: Embætti forseta Íslands.
  • Forseti ásamt meðlimum Ísbrúar - félags kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál. Ljósmynd: Embætti forseta Íslands.
Fréttir | 16. nóv. 2023

Íslenska sem annað tungumál

Forseti þakkar þeim sem kenna íslensku sem annað tungumál við hátíðlega athöfn á Bessastöðum á degi íslenskrar tungu. Efnt var til móttöku fyrir fulltrúa Ísbrúar, félags kennara sem kenna íslensku sem annað tungumál og afhenti forseti Þorbjörgu Halldórsdóttur, formanni Ísbrúar, þakkarskjal.

Við sama tækifæri fékk forseti afhenta myndaorðabókina Orð eru ævintýri sem nýverið kom út hjá Menntamálastofnun. Í bókinni er grunnorðaforða íslenskunnar komið til skila með myndrænum hætti og er hún bæði ætluð börnum og nemendum sem læra íslensku sem annað mál. 

Félagið Ísbrú var stofnað árið 1999. Það er vettvangur fyrir kennara til að fá og veita faglegan stuðning og fræðslu um nám og kennslu í íslensku sem öðru tungumáli á öllum skólastigum. Starf félagsins hefur vaxið ár frá ári eftir því sem innflytjendum fjölgar. Nemendur með erlendan bakgrunn nálgast nú 20% af heildarfjölda nemenda í íslensku skólakerfi. 

Pistill forseta: Dagur íslenskrar tungu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar