Fréttir | 19. sep. 2023

Kasakstan

Forseti tekur á móti Magzhan Ilyassov, nýjum sendiherra Kasakstans gagnvart Íslandi með aðsetur í London. Rætt var um samskipti Íslands og Kasakstans og leiðir til að efla þau, meðal annars með auknum viðskiptum á ýmsum sviðum. Þá var rætt um þau áform Kasaka að nýta jarðhita þar í landi og hugsanlega aðkomu íslenskra fyrirtækja. Einnig var rætt um innrás Rússlandshers í Úkraínu og alþjóðamál í þeim heimshluta og öðrum slóðum í nágrenni Kasakstans. Forseti rakti markmið og sjónarmið íslenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi á sviði mannréttinda og utanríkismála, jafnréttis- og umhverfismála.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar