Fréttir | 09. ágú. 2023

Kveðjufundur sendiherra Noregs

Forseti á fund með Aud Lise Norheim, sendiherra Noregs á Íslandi, sem senn lætur af störfum. Norheim afhenti forseta trúnaðarbréf sitt í október 2019. Á fundinum var rætt um dvöl sendiherra hér á landi síðastliðin fjögur ár, farsælt samband Íslands og Noregs, framtíð samstarfs á norðurslóðum og ýmsa viðburði í embættistíð hennar hér á landi, meðal annars heimsókn Hákons krónprins í fyrra og leiðtogafund Evrópuráðsins fyrr í ár. Einnig var rætt um hinu miklu flóð og hamfarir sem geisað hafa í Noregi að undanförnu.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar