Forseti og forsetafrú taka á móti þátttakendum alþjóðlegu ritlistarbúðanna Iceland Writers Retreat. Fólkið kemur hvaðanæva úr heiminum og nýtur hér leiðsagnar þekktra erlendra og innlendra höfunda í ritlist, fræðist um sagnaarf Íslendinga og kynnist landi og þjóð. Eliza Reid forsetafrú og Erica Green eru stofnendur ritlistarbúðanna sem voru nú haldnar í tíunda sinn.