Fréttir | 22. mars 2024

Menningarmót í Norðlingaskóla

Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla í Reykjavík. Nemendur sýndu þar og sögðu frá tómstundum sínum. Forseti flutti ávarp og gekk um ganga skólans. Þar eru nemendur og starfslið með margvíslegan bakgrunn og eiga rætur í meira en 30 löndum. Forseti sótti einnig Menningarmót í Norðlingaskóla við upphaf forsetaferils síns.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar