•  Þingmennirnir Angus MacNeil, Fabian Hamilton, Lia Nici, Martin Vickers, Tommy Sheppard og Tan Dhesi ásamt forseta.
Fréttir | 22. sep. 2023

Vinahópur Íslands

Forseti tekur á móti breskum þingmönnum sem sitja í vinahópi Íslands á breska þjóðþinginu. Markmið hópsins er að viðhalda góðum tengslum milli Alþingis Íslendinga og breska þingsins. Rætt var um þróun mála í íslensku samfélagi og á alþjóðasviðinu, samskipti Íslands og Bretlands gegnum tíðina og stöðu forseta í íslenskri stjórnskipan.

Þingmannahópurinn fundar einnig með Birgi Ármannssyni, forseta Alþingis, Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra og Bjarna Benediktssyni fjármálaráðherra. Þá kynna þau sér starfsemi íslenskra fyrirtækja í orkugeiranum og sjávarútvegi.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar