Forseti tekur á móti Magzhan Ilyassov, nýjum sendiherra Kasakstans gagnvart Íslandi með aðsetur í London. Rætt var um samskipti Íslands og Kasakstans og leiðir til að efla þau, meðal annars með auknum viðskiptum á ýmsum sviðum. Þá var rætt um þau áform Kasaka að nýta jarðhita þar í landi og hugsanlega aðkomu íslenskra fyrirtækja. Einnig var rætt um innrás Rússlandshers í Úkraínu og alþjóðamál í þeim heimshluta og öðrum slóðum í nágrenni Kasakstans. Forseti rakti markmið og sjónarmið íslenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi á sviði mannréttinda og utanríkismála, jafnréttis- og umhverfismála.
Fréttir
|
19. sep. 2023
Kasakstan
Aðrar fréttir
Fréttir
|
16. maí 2024
Fundur og ráðstefna í Tallinn
Forseti á fund með forsætisráðherra Eistlands.
Lesa frétt