• Forseti ásamt meðlimum úr stjórn Hinsegin daga á opnunarhátíðinni í Gamla bíói.
Fréttir | 08. ágú. 2023

Hinsegin dagar

Forseti sækir opnunarhátíð Hinsegin daga, menningar- og mannréttindahátíðar hinsegin fólks í Reykjavík. Yfirskrift Hinsegin daga í ár er „Baráttan er ekki búin". Opnunarhátíðin fór fram í Gamla bíói með fjölbreyttri dagskrá. Hátíðarræðu ársins flutti Ólöf Bjarki Antons, formaður Trans Íslands, og Una Torfa flutti lagið Þú ert stormur sem er einkennislag hátíðarinnar í ár. Hinsegin dagar standa út vikuna með fjölbreyttri dagskrá og ná hápunkti sínum með gleðigöngunni í Reykjavík laugardaginn 12. ágúst.

Þessi síða notar fótspor
Skoða nánar