Eliza Reid forsetafrú sækir ræðukeppni ESU, English Speaking Union, á Íslandi. Nemendur frá allmörgum framhaldsskólum ræddu á ensku um það sjónarmið að framtíðin sé í okkar höndum, undir forskriftinni „The only way to predict the future is to invent it“. Forsetafrú, sem gegndi áður formennsku í ESU, var meðal dómara. Í ár bar Verslunarskólaneminn Kjartan Ragnarsson sigur úr býtum og mætir til leiks fyrir Íslands hönd í alþjóðlegri ræðukeppni ESU í Lundúnum í vor.
Fréttir
|
17. feb. 2018
English Speaking Union
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt