Forseti Íslands fær gesti frá Skálatúni í heimsókn. Á Skálatúni í Mosfellsbæ búa nær 40 einstaklingar með þroskahömlun í sex sambýlum og njóta myndarlegrar dagþjónustu. Þar er meðal annars til sölu ýmis konar handverk og færðu gestirnir forsetahjónunum að gjöf forláta svuntur í fánalitunum, með mynd af knattspyrnulandsliðum karla og kvenna.
Fréttir
|
15. mars 2017
Gestir frá Skálatúni
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt