Forseti á fund með Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs. Farið var yfir stöðu mála í stjórnarmyndunarviðræðum og skilaði Katrín umboði forseta til stjórnarmyndunar. Að fundi þeirra loknum ræddi forseti í síma við formenn eða fulltrúa annarra stjórnmálaflokka á Alþingi og hélt svo fréttamannafund. Þar lýsti forseti sýn sinni á gang stjórnarmyndunarviðræðna og rakti næstu skref í þeim efnum. Yfirlýsing.
Fréttir
|
25. nóv. 2016
Stjórnarmyndunarviðræður
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt