Eliza Reid tekur á móti köku ársins á Bessastöðum. Ár hvert stendur Landssamband bakarameistara að vali á köku ársins. Í ár hreppti hnossið Davíð Arnórsson, bakari hjá kaffihúsinu og bakaríinu Stofan bakhús í Vestmannaeyjum. Sigurkaka hans er lagskipt, með möndlukókosbotni, hindberjahlaupi, skyrfrómas og öðru góðgæti. Forsetahjónin gæddu sér á köku sigurvegarans Davíðs ásamt Degi syni hans og fulltrúum frá Landssambandi bakarameistara. Sala á kökunni hefst á morgun.
Fréttir
|
16. feb. 2017
Kaka ársins
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt