Hópur flóttafólks frá Sýrlandi kom í dag til Íslands. Velferðarráðuneytið, Rauði krossinn og Reykjavíkurborg hafa haft veg og vanda af undirbúningi ferðarinnar hingað, skipulagt móttöku fólksins og búið í haginn fyrir það hér á landi. Forseti og forsetafrú buðu hópnum til Bessastaða. Forseti hélt stutt ávarp sem lesa má hér. Þorsteinn Víglundsson velferðarráðherra og Dagur B. Eggertsson ávörpuðu hina nýju íbúa á Íslandi sömuleiðis. Frá Bessastöðum hélt fólkið til hinna nýju heimkynna sinna. Flestir munu búa í höfuðborginni en nokkrir á Akureyri. Ávarp forseta (ávarpið í enskri þýðingu). Upptaka með ávarpi forseta.
Fréttir
|
30. jan. 2017
Flóttafólk
Aðrar fréttir
Fréttir
|
22. mars 2024
Menningarmót í Norðlingaskóla
Forseti sækir Menningarmót í Norðlingaskóla.
Lesa frétt
Fréttir
|
21. mars 2024
Alþjóðadagur Downs heilkennisins
Forseti tekur á móti pari af mislitum sokkum
Lesa frétt