Forseti er viðstaddur verðlaunaafhendingu úr Ásusjóði. Verðlaunin hlaut að þessu sinni Guðrún Larsen jarðfræðingur og prófessor emerita við Háskóla Íslands fyrir rannsóknir og kennslu á fræðasviði sínu.
Guðrún Larsen, jarðfræðingur og vísindamaður emerita við Jarðvísindastofnun Háskólans, hlaut viðurkenningu úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright fyrir árið 2016.
„Guðrún Larsen jarðfræðingur hefur stundað viðamiklar rannsóknir á gjóskulögum eldfjalla og ekki síst Vatnajökulskerfisins sem hún telur að muni sýna áframhaldandi eldvirkni næstu ár eða áratugi. Fyrir það hlýtur hún Ásuverðlaun Vísindafélags Íslendinga fyrir árið 2016,“ segir í tilkynningu.
Verðlaun úr sjóðnum eru veitt þeim íslenskum vísindamanni sem náð hefur framúrskarandi árangri á sérsviði sínu í vísindum eða fræðum og miðlað þekkingu sinni til framfara í íslensku þjóðfélagi, segir jafnframt í tilkynningu.