Forseti afhendir viðurkenningu Fjölskylduhjálpar Íslands. Sjálfboðaliðar og fjölmörg fyrirtæki sem hafa lagt Fjölskylduhjálpinni lið á árinu fengu í dag viðurkenningu samtakanna. Án þessarar greiðvikni og fórnfýsi næði Fjölskylduhjálpin ekki að hjálpa eins mörgum bágstöddum í samfélaginu og raun ber vitni. Forseti og Linda Pétursdóttir, vildarvinur samtakanna og fyrrverandi verndari, afhentu viðurkenningargrip Fjölskylduhjálparinnar. Þá opnaði forseti formlega vefsíðuna Íslandsforeldri þar sem fólki gefst kostur á að styrkja starfsemi samtakanna með mánaðarlegu framlagi. Mynd.
Fréttir
|
14. nóv. 2016
Fjölskylduhjálp Íslands
Aðrar fréttir
Fréttir
|
25. apr. 2024
Lýðheilsuverðlaunin 2024 afhent
Forseti afhendir Íslensku lýðheilsuverðlaunin í annað sinn
Lesa frétt