Forseti hefur sent Donald Trump, nýkjörnum forseta Bandaríkjanna, heillaóskir frá sér og íslensku þjóðinni í kjölfar sigurs hans í forsetakosningunum. Forseti áréttaði í kveðju sinni rótgróna samvinnu og vináttu þjóðanna tveggja og langa sameiginlega sögu sem teygði anga sína allt aftur til þess er sæfarendur frá Íslandi og Grænlandi tóku land í Norður-Ameríku fyrir meira en þúsund árum. Öldum síðar hefðu þúsundir Íslendinga flutt búferlum vestur um haf og leitað nýrra tækifæra sem nýbúar í frjálsum samfélögum. Enda þótt Bandaríkin væru eitt stærsta lýðræðisríki veraldar en Ísland eitt hið minnsta deildu þjóðirnar mörgum mikilvægum gildum; við styðjum einhuga frelsi til hugsana og tjáningar, jafnrétti kynjanna og höfum í hávegum jafnan rétt allra þegna óháð litarhafti eða trú. Fréttatilkynning.
Fréttir
|
09. nóv. 2016
Heillaóskir
Aðrar fréttir
Fréttir
|
20. apr. 2024
Grímsfjall og Jökulheimar
Forseti heldur að Grímsvötnum í Vatnajökli.
Lesa frétt
Fréttir
|
16. apr. 2024
Forsætisráðherra Skotlands
Forsetahjón eiga fund með Humza Yousaf.
Lesa frétt