Forseti á fund með Hildigunni Sverrisdóttur, Ingibjörgu Stefánsdóttur og Lilju Hjartardóttur um móttöku flóttamanna á Íslandi. Rætt var um brottvísun flóttamanna sem oft orkar tvímælis enda vandi margra mikill. Það sjónarmið kom fram að stefna Íslendinga í þessum efnum sé mótsagnakennd og stangist jafnvel á við alþjóðlegar skuldbindingar auk þess sem huga þurfi sérstaklega að hagsmunum kvenna sem hér leita ásjár. Myndir.
Fréttir
|
25. ágú. 2016
Vandi flóttamanna
Aðrar fréttir
Fréttir
|
24. apr. 2024
Hvert stefnir Ísland?
Forseti flytur ávarp á árlegri ráðstefni Alþjóðamálastofnunar.
Lesa frétt